um heilsu, mataræði, lífrænan lífstíl og margt fleira

Ég er flutt…

16. júní 2010

hingað (svoludottir.wordpress.com)

Sjáumst þar með lífrænt bros… :-)

grænnsafi

lífrænn skyndibiti

14. júní 2010

…fyrir ofurhuga

lífrænn_grænn_hristingur Lífrænn grænn heilsuhristingur fyrir ofurhuga eins og Stjána bláa og þig!

  • Spínat
  • Lífrænt epli
  • Lífrænn Ananas/mangó safi frá Yggdrasil
  • Lífrænt Sesammauk – Tahini
  • Kókosvatn

Blandið, drekkið og njótið.

Tók styttri tíma en að panta pizzu og því einstaklega sniðugt fyrir alla þá sem eru að fylgjast með HM í fótbolta!:-)

- gerist varla hollara, einfaldara, lífrænna og þetta virkar eins og lifnaðarpilla :-)

29697_405872659590_697439590_4146484_3420217_nAllir geta gert þetta, ég hvet þig til þess að prófa!! Það tekur þig 5 mínútur að blanda hádegisverðinn.

Áfram lífrænt! Áfram heilsa! Áfram lífræn heilsa! :)

Bkv. Sirrý græna

Dr.Hauschka

10. júní 2010

Að byrja daginn LÍFRÆNT með Dr. Hauschka

Dr.Hauschka_hreinsimjólkÞið hafið eflaust tekið eftir ómældri ást minni á þessum snyrtivörum. Ég skal reyna vera hnitmiðuð og stilla lýsingarorðum í hóf í þessum pistli svo þið kannski áttið ykkur á hversu mikil schnilld þessar vörur eru. Trúið mér, það er mjög erfitt að gera stuttan pistil um þetta :-)

Dr. Hauschka:

  • Eru unnar úr 100% lífrænum hráefnum.
  • Þær eru ekki bara lífrænar, heldur nota þeir Demeter vottað hráefni eins mikið og mögulegt er.
  • Muna: Demeter er bíódýnamísk ræktun, og það er s.s hæsti mögulegi gæðastimpill sem þú getur mögulega fengið í geiminum!
  • Ef þú sérð eh Demeter, þá geturu treyst því að gæðin eru þúsund prósent. Ekkert bull og engin vitleysa!
  • Þeir notast við villtar náttúrulegar jurtir og hráefni einnig. S.s ekki eh fjöldaframleitt kjaftæði…heldur Náttúrulegt!
  • Dr. Hauschka er ekki gróðafyrirtæki, heldur sjálfseignarstofnun! Það þýðir að þau eru ekki að framleiða vörurnar með því markmiði að selja þér þær og græða, heldur …tja…bara af svo mikilli ást og virðingu. Hljómar of gott? Well, ég hef actually farið á staðinn og séð þetta með berum augum. Og þetta er fáránlega yndislega fullkomið krútt þetta fyrirtæki!

Gæði…sko engin venjuleg gæði!

Dr. Hauschka er sennilega eina merkið sem er sannarlega náttúrulegt, Eru ekki allir orðnir jafn þreyttir og ég á orðinu „Náttúrulegt“ ? Aðallega vegna þess að það er ofnotað og yfirleitt eru snyrtivörumerki og matvælaframleiðendur að ljúga að manni.  Dr. Hauschka ákvað að taka málin í sínar hendur því það vantaði almennilega gæðavottun á vörur sem voru í alvörunni náttúrulegar, þ.e notast við hreinar og jafnvel villtar plöntur og jurtir. Í framhaldi af því (tók eh mörg ár)  varð til nýr alvöru náttúrulegan gæðastimpil sem kallast NATRUE. Nota bene, Dr. Hauschka er ekki eigandi þessa stimpils, sem eðlilega hefði ekki verið sniðugt en þeir tóku þátt í að þróa hann og gera vottunina mjög stranga. Vottunin er algjörlega óháð þeim. Þessi stimpill er ótrúlega góður og það er mjög erfitt að fá hann á vörurnar sínar. Hann tryggir það að afurðirnar sem og vörumerkið sem hlotnast þennan stimpil, sé Sannarlega NÁTTÚRULEGAR. Ekkert fokkans kjaftæði og rugl. Nú þegar eru 30 vörur frá Dr. Hauscka komnar með þennan stimpil, en allar vörurnar eru nú þegar hæfar til þess að hlotnast hann. En þar sem þessi stimill er ungur, þá tekur þetta tíma að fá hann á vörurnar sjalfar. Með tímanum mun þessi stimpill verða einn af bestu gæðastimplunum í snyrtivörum og vonandi eh sem þú munt jafnvel krefjast af þínu snyrtivörumerki sem þú notar sjálf- For sure! Því það skiptir svo miklu máli að vita hvað maður er að nota á smettið á sér. Ég vil vita hvað innihaldið er og hversu hreint það er því ég er að nota það á mína húð, stærsta líffærið mitt og það skiptir mig miklu máli að vera meðvituð um gæðin og hráefnin og jafnvel stefnu fyrirtækisins. Það er bara svo mikið af rusli til á snyrtivörumarkaðnum að mér finnst einkar mikilvægt af mér að koma þessum málstað Dr. Hauschka til meðvitundar allra þeirra kvenna og manna sem kjósa að nota svona vörur. Því það er betra að vita og vera meðvitaður, en að nota eh í blindni.

Um hvað snýst Dr. Hauschka?

Ég held það sé ekki hægt að tala um það í of fáum orðum. Það sem mér finnst skipta mestu máli með þessar vörur að þeim er hægt að treysta að öllu leiti, ekki bara gæðunum heldur vörunni frá A-Ö. Ég er svo heppin að hafa farið til þeirra út, hitt fólkið á bak við þessar vörur, kynnst framleiðslunni, hugsjóninni, heimspekinni og orðið vitni af þvílíkri virðingu og ást sem fólk ber fyrir bæði mannfólkinu og umhverfinu okkar við framleiðslu þessara vara. Ég hef aldrei séð annað eins. Þetta fyrirtæki framleiðir mikið undir stefnu Rudolfs Steiners - sem í fáum orðum er mikill frumkvöðull á bak við mikla umhverfis, náttúru og virðingar og andlega stefnu (Mannspeki eða anthroposophy) Þ.e að allt í heiminum tengist og allt í heimum sé eitt og tengist. Þessi stefna er ofsalega falleg og á bak við hana er mikil hugsjón og mér þykir vænt um að þessi speki sé höfð að leiðarljósi við framleiðslu á afurðum sem ég læt ofan í mig og á. Rudolf Steiner er maðurinn á bak við stefnuna í Waldorf skólunum meðal þess að vera maðurinn á bak við Demeter ræktun eða bíódýnamíska ræktun. Þið getið lesið smá um Rudolf Steiner á síðu BíóBús hér.

100%  náttúrulegt en samt svo mikið mikið meira en það…

Dr. Hauschka vörurnar eru blandaðar þannig að þær vinna með húðinni til að ná jafnvægi, en vinna ekki hlutina fyrir hana. Þær styrkja náttúrulegt ferli húðarinnar svo hún nái jafnvægi á sem náttúrulegastan hátt. Mér finnst einfaldast að útskýra þetta þannig, að þær gera þig t.d ekki háða eh ákveðni vöru, nema að því leyti að þú ferð bara að vilja velja hana umfram aðrar því þú fattar hvað vörurnar eru frábærar og gera mikið fyrir þig. T.d ef þú ert með þurra húð og notar venjulegt dagkrem ( nú vil ég samt ekki fullyrða um allar heimsins vörur því jú, það eru auðvitað til mörg fín krem sem gera góða hluti einnig) þá vinnur venjulega dagkremið þannig að það sér til þess að rakinn viðhaldist í húðinni, svo hættiru að nota kremið og þá byrjaru aftur að þurrkast. Svoleiðis vinnur ekki Dr. Hauscka – þær vinan ekki fyrir húðina né viðhalda vörurnar sjálfar rakanum í húðinni, heldur hjálpa þær húðinni sjálfri að framleiða meiri raka til að fá aftur jafnvægi. Svo þegar þú hættir að nota Dr. Hauschka krem, þá ertu ekki að fara þorna upp um leið og þú hættir að nota það. Fattaru?

Þær vinna ekki fyrir þig, heldur leitast við að ná jafnvægi.

Þetta á við um allar vörur Dr. Hauschka. Þær vinna ekki vinnuna fyrir þig, heldur leitast við að ná húðinni í betra jafnvægi. Sem er snilld!  Ég hef sagt það áður hérna í þessu bloggi að þær eru jafnframt kallaðar „healing cosmetics“. Ástæðan er sú að þær gera einmitt þetta, þær eru sérstakleg blandaðar með það í huga að ná fram jafnvægi í húðinni á sem virkasta og náttúrlegastan hátt. Það eru notaðar heilnæmar jurtir (belíf me þær eru ekki vægar, heldur eru þær virkar og ótrúlega góðar!) til þess eins að lækna húðina þeim kvilla sem hrjá hana. Hvort sem það eru bólur, ör, þurrkur eða pirringur eða hvað eina. Ótrúlegum árangri er náð á sem náttúrulegastan hátt, þó það taki örlítið lengri tíma en með kemískum, parabenfullum og krabbameinsvaldandi sýklalyfja kokteila kremum,- þá er árangurinn meiri, betri og pottþétt til lengra tíma litið.

Mín reynsla

Ég hef sjálf testað þetta á mér. Ég fæ stundum ótrúlegan pirring og stress í smettið á mér og næstum því 24 tímum eftir að ég tek hana í gegn með vörunum þá myndast ótrúlegt jafnvægi í húðinni. Dr. Hauschka talar t.d mikið um að notast ekki við krem á kvöldin til að leyfa húðinni að ná meira jafnvægi á nóttunni, sem hún einmitt gerir. Þá losar hún sig við allskonar skít sem safnast hefur yfir daginn og þegar við setjum á okkur krem alltaf fyrir hverja nótt, þá erum við að gefa húðinni vitlaus skilaboð um að við sjáum sjálf um að halda rakanum fyrir hana. Ég get fullyrt það að ég mun ekki notast við neinar aðrar vörur í framtíðinni.

Þessar vörur eru mikið til að læra um og þetta er ekki endilega mjög einfalt mál að kynnast Dr. Hauschka á stuttum tíma. Þess vegna ráðlegg ég ykkur að fara sérstaka Dr. Hauschka leiðangur fyrst niðrí Yggdrasil til hennar Jóhönnu og fá smá innsýn inní hvaða vörur gætu hentað ykkur.  Jóhanna er niðrí búð á hverjum einasta þriðjudegi frá sirka 16:00- 19:00 og getur sagt ykkur margt og mikið um Dr. Hauschka alveg frítt, jafnvel meira en ég er að reyna gubba úr mér hér í þessum pistli.

Ef þið viljið enn meiri fræðslu og jafnvel prufa Dr. Hauschka DEKUR  – þá ættuð þið að panta tíma hjá henni Ingu snyrtifræðingi, en hún er eini lærði Dr. Hauschka snyrtifræðingurinn á Íslandi. Pétur Darri kærastinn minn fór til hennar um daginn og kom eins og nýr úr kassanum. Inga notast einungis við Dr. Hauschka vörurnar í meðferðum sínum og ég mæli sérstakleg með að fólk fari til hennar ef það hrjáist af alvarlegri húðvandamálum eða bara langvarandi húðvandamálum. Hún er rosalega klár á vörurnar og hefur náð miklu árangri með fólk með vandamálahúð. Þið getið pantað tíma hjá Ingu í síma 690-5365 og hún er staðsett á Óðinsgötu fyrir ofan gamla Yggdrasil.

Þið getið farið í Dr. Hauschka:

  • Andlitsbað
  • Lúxus 2ja tíma andlitsbað
  • Húðhreinsun
  • fótadekur
  • og endalaust margt fleira

Dr. Hauschka vörurnar fást í Yggdrasil, Manni lifandi, Lyfjaveri & Fræinu Fjarðarkaupum.

Látum þennan endalausa fræðslupistil um Dr. Hauscka enda hér :-)

Bestu kveðjur,
Sirrý – sem elskar Dr. Hauschka fyrir svo margt!!!

Lífrænn hádegisverður

9. júní 2010

…jafnframt hollur skyndibiti fyrir fólk eins og þig!

Fyrir fólk eins og mig líka, sem nær varla stundum andanum af verkefnum, brainstormi og framkvæmdagleði í vinnunni.
Tók mig 5 mínútur að preppa og alveg 15 mínútur að njóta! … namm….

Chinese_Broccoli_PhotoAf einhverjum ógurlega skrýtnum ástæðum get ég ekki póstað myndinni af hádegisverðinum á blogginu…svo smellið á linkinn til að geta séð útkomuma.

Heilhveiti tortilla

Grísk jógurt frá Bíóbú (lífrænt)
Kínverskt brokkolí frá Engi (lífrænt)
Gul og rauð papríka frá Yggdrasil (lífrænt)
Tofu frá Yggdrasil (lífrænt)
Sveppir (íslenskir)
Chili pipar skorin í frumeindir, frá Akri (lífrænn)-

Grænmetið og sveppir léttsteikt.

Tofú-ið steikt sér með Naturata steikingarolíunni (hrikalega hitaþolin) og smá hvítlauk og chili mauki.

Tortillan hituð, sósan sett á og restin sett á og vafið og  borðað…

Í gær…

Ég fór í uppáhaldsbúðina mína, Yggdrasil í gær og fyllti eldhúsið mitt af lífrænum afurðum. Lífræn rauð epli, lífræn græn epli, lífrænar sætar kartöflur…og svo nýjasta nýtt: kínverskt brokkolí! Þvílíkut undur og nú tala ég eins og skósjúk kona í skóbúð. Ég elska sumrin á íslandi meða annars vegna stóraukins úrvals af íslenska grænmetinu. Ég hvet þig og þig og þig til þess að veita íslenska grænmetinu meiri athygli í sumar og smakka það helst allt!!!  Prófiði nýjungarnar þeirra, prufið að gera chili sultu úr lífræna ótrúlega fallega chilipiparnum frá Akri. Verslið lífrænu gúrkurnar og tómatana frá Akri. Þeir smakkast eins og konfekt eins og reyndar allt íslenska lífræna grænmetið…svo getiði líka orðið áskrifendur hjá græna hlekknum.

Lífrænu bændurnir á íslandi eiga við högg að sækja hérna á Íslandi. Verum meðvituð um ástina á bak við ræktun íslenskra lífrænna afurða og deilum ástinni áfram.

Áfram lífræn ræktun á íslandi!

P.s ég er að velta því fyrir mér að færa bloggið mitt á annan stað. Stay tuned.

Sól úti, sól inni…sól í hjarta..

27. maí 2010

sol-uti_-sol-inni-1500Ég elska sumrin á Íslandi…. Ég man þegar ég var yngri, barnslaus og frjáls…þá elskaði ég að fara út á miðnætti, hjóla um alla Keflavík…fáir ef einhverjir voru á sveimi. Þetta var dáldið eins og að vera Palli einn í heiminum. Allt svo bjart, sólin varla sest…næstum algjör þögn. Dásamlegt!!! Ég elska birtuna hérna og myndi aldrei skipta henni út fyrir neitt! Þvílíkt undur þessi miðnætursól.

Ég er búin að vera í svo miklu sumarskapi. Í 5 daga í röð hefur verið hálfgert stuttbuxnaveður og maímánuði ekki einu sinni lokið. Nú er ég að upplifa fyrsta sumarið mitt sem Reykjavíkurmær og ég gæti ekki verið glaðari í hjarta mínu. Ég hef heldur aldrei verið eins freknótt á ævinni  :)

Allavega, á svona blíðviðrisdögum er must að:

  • stunda laugarnar! ódýrt og bara dásamleg fjölskylduskemmtun og um leið slatti dekur :)
  • muna að sólin er ekki djöfullinn, hún nærir kroppinn af lífsnauðsýnlegu D-vítamíni.
  • muna líka að það er ekki gott að steikja sig í sólinni, frekar að nota hana hóflega og fá góðan skammt af næringu
  • drekka ferska íslenska vatnið okkar og kreista jafnvel sítrónu út íSA6528
  • í hreinni lífrænni kókosolíu er pínu pons af náttúrulegri sólarvörn. Plís notið samt hausinn og farið varlega. Auðvitað er fólk misjafnt – svo takið þessu með varúð þið sem eruð t.d með viðkvæma húð.
  • lesið aftan á sólvitdmetabolismarvörnina ykkar – paraben stytta lífið og flestar þessara sólarvarna gera eflaust margt verra en gott!
  • Ég ráðlegg ykkur að velja náttúrlegri sólarvarnir í stað þessara „hefðbundnu“, skoðið úrvalið í heilsubúðum og lesið innihaldið!!!
  • Róið ykkur í lýsinu og fáið frekar D-vítamínið úr sólinni. Nú er málið að njóta Hörfæjarolíunnar til dæmis ;)
  • Æfið ykkur í að gera léttan mat. Nú er sko tími til að taka fram stóru salatskálarnar, djúsvélina, kaupa meira grænt íslenskt grænmeti og ávexti! Vá hvað ég get ekki beðið eftir öllu græna ÍSLENSKA salatinu!!!
  • Hjóla, labba, skokka meira – leggið bílnum eins lengi og þið getið! Notið náttúruleg hestöfl til að koma ykkur á milli staða!! :)
  • Ræktið vinasambönd, njótið menningarinnar í miðborginni, notið garðinn meira, ræktið blóma/ávaxtagarð á svölunum ykkar…hvað sem er… Njótið þess að vera ÚTANDYRA!! :)
  • D- vítamín er einn mikilvægasta krabbameins forvörn sem við fáum, það er að mestu ókeypis, svo njótið vel og lengi :)

Gleðilegan D-vítamín dag í dag :)

11 atriði sem ég get ekki lifað án

25. maí 2010

Það er margt sem ég tel mig ekki getað lifað án…meðal þeirra er að sjálfsögðu fjölskyldan og vinir…

Þessi listi telur hins vegar þá dauðu en þó mikilvægu hluti sem ég elska að nota/eiga og gera lífið skemmtilegra…Og já ég ELSKA að gera lista!! :)

cupoftea

Ég er með algjöra listomaníu!! :-) ))

  • Tónlist / það verður ekki tekið af mér…án tónlistar þá myndi ég lifa mun styttra! Góð tónlist er eins og soulfood í mínum eyrum!
  • TE! – ég elska lífræn, bragðgóð og dásamleg te. Mér finnst við  Íslendingar drekka allt of lítið af þeim. Te eru hafa einstaklega mikinn lækningarmátt. Afstressa þig, hreins þig og bæta þig. Ég elska CLIPPER te-in mín. Mitt uppáhald er Rauðrunnate-ið og Hvíta teið. Clipper er næstum alltaf ódýrari heldur en hefbundin ólífræn te. Þau eru ekki krydduð, heldur bara ljúf, hrein lífræn te.
  • Minn daglegi bloggrúntur: Auðvitað er alveg VITAL að fá sér sinn skammt af netflakki. Mér finnst bloggmetnaðurinn í Íslendingum vera batna til munaðar. Nú er hægt að lesa blogg eins og tímarit. Og svo verð ég líka að nefna hér NUDE magazine, sem er íslenskt píu blað. Pjattrófurnar, Frigid, Sigga Dögg, RawSolla, Bára Hlín…alveg mustread :)
  • Cupcakes eða muffins! Ég er hörmuleg í eldhúsinu og mér finnst varla neitt leiðinlegra en að hanga þar…en sirka 1x á ári læt ég verða að því að baka ekta Cupcakes. Uppskriftinm sem ég nota er frá Sunnu vinkonu og hún má fá heiðurinn af því að gera heimsins fallegustu og bestustu cupcakes í heimi. Ég er búin að smakka ekta New-yorkískar cupcakes á MAGNOLIA BAKERY – og sorry, þær eiga bara ekki roð í hennar :) Svo eru þær svo ótrúlega fallegar…og sumarlegar!!
  • DR.HAUSCHKA  hreinsilínan – Ég er svo fokk ánægð með þessa vörulínu og af mörgum ástæðum. Þær eru fyrsta flokks hágæða lífrænar vörur og svo ótrúlega heilnæmar.Smettið á mér er eins og eftir 90 mínútna andlitsbað á snyrtistofu. Á hverjum degi byrja ég á því að leggja góðan grunn að fallegu smetti :-) Ég nota:
  1. Hreinsikremið
  2. Andlitsvatnið
  3. Hreinsimjólkina
  4. Í örfá skipti nota ég Rósakrem light (dagkremið)
  • Moleskin dagbækurnar – omg, þær eru ógeðslega dýrar og ég hef keypt eftirlíkingar í Tiger sem eru líka AWESOME. En vá hvað þær eru samt æðislegar. Ef Moleskin væri bara ekki svona dýrt, þá myndi ég eiga allar stærðir. Ég elska að skrifa niður, punkta niður hugsanir og reyna að skipuleggja mig – sem virðist vera einn af mínum mestu göllum. En ég reyni og svona bækur hjálpa slatta til!!
  • TÍMARITIN MÍN sem ég fjárfesti í mánaðarlega – ég hlýt að hljóma eins og eh uberchick með tískudellu…ég elska að kaupa vel valin tímarit. Uppáhaldin mín eru dönsku blöðin Eurowoman og Cover, svo fylgja fast á eftir Danska ELLE, breska ELLE og svo örsjaldan Vouge. Ég þoli ekki ameríska Vouge samt. Maður fjárfestir í þessum tímaritum nú bara spari, enda fokdýr munaður!
  • Hreinir lífrænir safar – ég kaupi ALLTAF bautelsbacher safana. Þeir eru 100% lífrænir, hreinir, án þess að innihalda þykkni eða eh djöfulinn sem ég neita að eyða peningunum mínum í. Ég vil bara hreint ofurstöff. Safarnir eru mjólkursýrðir og það þýðir:
  1. gott fyrir meltinguna
  2. náttúruleg „rotvörn“ og þá án allra kemískra drulluefna sem venjulega eru í venjulegum söfum…
  3. öflugur asídófílus og kemur jafnvægi á þarmaflóruna
  4. basískt fyrir kroppinn – ekki súrt, þótt safinn sjálfur sé súr
  5. að safarnir eru næringarríkari…hver þarf ekki á því að halda í dag!
  6. styður myndun meltingarvökva eða ensíma…
  • lífrænt GINGER ALE- það þarf ekkert að skrifa meira um það…það verða allir HÚKKT á þessu og sérstaklega á sólríkum degi sem þessum. Ginger ale er líka frábær „óléttu“ bjór, krakkagos ég veit ekki hvað og hvað…ég er búin að drekka heilann kassa af þessu síðan í vor! nammmmíííí
  • SUSHIÞetta er bara svo fokk ferskur og dásamlegur skyndibiti…dáldið dýr, en vá hvað hann er yfirleitt vel þess virði :) Það myndast líka svo mikil stemmari þegar fólk tekur sig til og borðar sushi og sötrar gott hvítvín með.
  • Yoga – Ég geri alltof sjaldan yoga…en anssk..ég er búin að læra yogakennarann og nú skal reynt að troða inní mína daglegu rútínu 5stk sólarhyllingar til að fríska uppá liðleikann og kroppinn í heild sinni. Þetta er besta mögulega kroppa æfing sem fyrir finnst. Og ekki verra…yoga lengir lífið :)

Gleðilegt ofursumar…!!!!

Löng helgi!

21. maí 2010

rauðrófusafi

Nokkur atriði…sem ég ætla að gera um helgina.

  • Hitta vinkonurnar í kvöld!!!
  • Slátra einni góðri lífrænni Rauðrófusafa flösku
  • Setja á mig kísil maskann frá Dr. Hauschka – hrikalega hreinsandi og frískandi!
  • Koma hjólinu mínu í gang í dag eftir langt vetrarfrí
  • Drekka slatta af nýlöguðu sítrónuvatni fyrir nýrun. Yogameistarinn minn sagði að það hreinsaði um 80% af nýrunum á skjótum tíma. – Volgt vatn og 1/2 nýkreist sítróna! Nammi!
  • Fara í gegnum fataskápinn og losa! Nú þarf ég að fara halda Fatamarkað!
  • Æfa mig í að gera minn eigin Expressó með nýju 500 króna mokka könnunni minni sem ég fékk í Góða hirðinum
  • Twitta! – nýjasta æðið!
  • Kaupa mér kassa af lífrænu ginger ale, kæla og drekka alla helgina. Ef þú ert ekki búin að smakka þetta snilldar lífræna gos, gerðu það þá núna!
  • Eyða 2 dögum í sveitasælunni með fjölskyldunni!! :)

drauma hjólið

face-cleansing-clay-mask

Ég vona að þú munir eiga jafn góða helgi og ég á í vændum :)

Bkv. Sirrý

Ég var „tögguð“…

18. maí 2010

….og hér kemur minn listi…

listography350

Þrjú nöfn sem ég er kölluð:

  • Sirrý
  • Síólín
  • Sirra

Þrír staðir sem ég hef búið á:

  • 230 Keflavík
  • 260 Njarðvík
  • 101 Reykjavík

Þrjú uppáhaldslög:

  • Gong – Sigurrós
  • Way out – Orbital
  • Nothing better – The postal Service

Þrír uppáhalds drykkir:

  • Lífrænn Rauðrófusafi
  • Ferskur nýkreistur safi
  • Macciato

Þrír sjónvarpsþættir sem ég horfi á:

  • Horfi ekkert á sjónvarp, nema stundum á despó.
  • Ég elska educational þætti og heimildarmyndir, t.d get ég hangið lengi yfir Anatomíu þáttum.

Þrír staðir sem ég hef farið til:

  • New York,
  • Amsterdam,
  • Þýskaland

Þrír staðir sem mig langar að heimsækja:

  • Berlín,
  • Amsterdam
  • Suður Frakkland
  • Stokkhólmur, varð að velja líka! :)

Þrír gamlir sjónvarpsþættir sem ég horfði á:

  • SATC
  • Friends
  • Klovn

Þrjár uppáhalds förðunarvörur:

  • Dr. Hauschka hreinsilínan í heild sinni
  • CoverAll Mix frá MAKE-UP Store
  • Dr. Hauschka volume maskarinn.

Þrír hlutir sem ég hlakka til:

  • Sjá stelpuna mína vaxa
  • eignast draumahúsið og breyta því,
  • gifta mig.
  • Svo líka að ná árangri í leik og starfi. Love it!

Ég tagga þig kæri bloggari :-)

svala rún st

Alþjóðlegi dagur sanngjarnra viðskiptahátta

7. maí 2010

Á morgun 8. maí er alþjóðlegi Fair Trade dagurinn.

Í tilefni þess langar  mig að kasta fram spurningunni:

Kaupir þú Fair trade vörur umfram aðrar, og afhverju?

wftdaylogo

Ég var að koma af magnaðri ráðstefnu í þýskalandi sem Dr.Hauschka bauð mér á og ég held ég hafi aldrei verið eins  ánægð í hjarta mínu að það sé ennþá fólk að framleiða vörur af ást, alúð, í tilliti við umhverfið og með þína eigin heilsu og hagsmuni fyrir brjósti sér.  Dr. Hauschka framleiðir vörurnar sínar af ótrúlegri og magnaðri hugsjón og heimspeki.

Þær eru meðal annars:

  1. Demeter gæði
  2. Lífrænar
  3. Fair trade
  4. framleiddar í sátt við náttúru (t.d er ekki ofnotað vatnsauðlindir)
  5. Þær eru 100% náttúrulegar, og þá meina ég virkilega náttúrulegar…ekkert kemískt!
  6. þær vinna með húðinni, ekki fyrir hana…s.s hver og ein vara er unnin til að hvetja húðina til að laga sig sjálfa…Fattiði?
  7. engin Paraben
  8. Framleiðslan er í heild sinni unnin út frá stefnu Rudolfs Steiners (virkilega virkilega falleg hugsjón! og engan vegin hægt að útskýra í fáum orðum)
  9. Notaðar eru virkilega hágæða hráefni úr eigin lífrænum jurtagarði sem er stórkostlegur!!!
  10. 100% umhverfisvænar

..þetta ásamt milljón öðrum staðreyndum.

image_thumb

Ég hef milljón sinnum sagt, að enginn ætti að bera neitt á húðina sína sem þeir geta ekki hugsað sér að leggja til  munns. Allt innihaldið í þessum vörum eru fáránlega heilnæmar og hreinar. Það má segja að þessar vörur séu „healing cosmetics“, þ.e þær hafa allar tilgang, þær lækna, laga, bæta…á virkilega heilnæmann og náttúrulegan og lífrænan hátt!

Probiersetset Haut 1.1Ég mæli 100% með Dr. Hausckha vörunum!! Með öllu mínu hjarta!!!

Ég byrjaði sjálf á því að kaupa mér „ferðasettið“. Vegna þess að í því eru næstum allar þær vörur sem þú þarft til að hreinsa andlitið og gefa andlitinu ótrúlega góðan grunn fyrir t.d daginn. Að mínu mati eru það bestu byrjendakaupin.  Ef þú ert með ójafnvægi í húðinni þá er þetta kit málið.

Á morgun verður sérstakt „vakningar“ tilboð á sérvöldum Fair trade vörum í Yggdrasil. Ég hvet þig til að kýkja og velja Fair trade á morgun og um ókomna framtíð! :)

Dr. Hauschka vörurnar má fá í : Yggdrasil, Heilsuveri og í Fræinu.

Góða og yndislega helgi!

Kv. Sirrý – sem ætla að heilsa uppá lífrænu bændabýlin á eftir og segja halló við lífrænu bændur landsins!!!

Ég lofa að leyfa ykkur að vera „með“ í anda :-)


Vorhreingerning „the natural way“ ;)

29. apríl 2010

spring-cleaning

Sumarið kemur ekki fyrr en vorhreingerningunni er lokið á mínu heimili…Ég er þessi fanatíska og ýkta þrifsjúka húsmóðir. Allt eða ekkert, ég get ekki þrifið bara gólfið, það verður að færa alla sófa, húsgögn og aftengja græjur og flétta snúrur uppá nýtt og gera helst allt í einu spikk og span! Ekkert minna dugir, sérstaklega á vorin eftir langan og dimman vetur. Og svona húsmæður eins og ég verðlauna sig svo með heitu lavender baði og jafnvel góðu rauðvínsglasi. Auðvitað og næstum ekkert er sjálfsagðara :)

Og þvílík tilfinning þegar að íbúðin lítur út eins og í nýju Elle Decoration blaði! Þegar ég er í stuði, þá sendi ég kærastann á barinn, skvísuna upp í sólstofu að leika, ýti á Play á græjunum og byrja. Mér finnst sko ekki leiðinlegt að gera hreint heima hjá mér!! :-9

  • -allt hreint
  • -allt á sínum stað
  • -blóm í vasa
  • -hrein rúmföt
  • ….unaðslegt!

Ég tók skrefið fyrir nokkru síðan og hætti að kaupa kemískar og krabbameinsvaldandi hreingerningarvörur. Ég var fyrst pínu kvíðin, því ég veit ekkert betra en þessi hreingerningarlykt. Það fór hins vegar alltaf í taugarnar á mér hvað Ajax til að mynda, lyktar eins og krabbamein. Fyrr má nú vera, ég er viss um að ef ég tæki sopa af þessum vökva myndi innyflin á mér soðna eða steikjast á 30 sekúntum. A.m.k brenna bifhárin í nefinu mínu þegar ég lykta af þessum vörum og ég tók því ákvörðun um að spúa þessum efnum ekki lengur á mín hólf og gólf. Svo ég valdi Sonett…cleaning

Sonett er svo náttúrulegt að sennilega myndiru fá næringu ef þú myndir drekka þessar vörur. Að sjálfsögðu ætlar þú ekki að vera vitlaus og sannreyna þessa fullyrðingu mína, en sennilega er þetta rétt hjá mér :) Pælingin hjá Sonett er að framleiða Ultra náttúrulegar hreingerningarvörur í sátt við jörð og umhverfið. Innihald varanna er mest megnis bara kókos afurðir, jurtir og náttúrulegar ilmolíur. Vá, þér á eftir að finnast gaman að lesa innihalds miðann!!! Ég fæ alveg í´hana þegar ég fatta svona fáránlega hreinar og umhverfisvænar vörur! YESS!

62520Vörurnar eru meira segja blandaðar í sátt við Rudolf Steiner fræðin, jú…Rúdólf nokkur Stæner er maður sem fann upp Demeter ræktun, er maðurinn á bak við Waldorf stefnuna og á margar góðar kenningar í næringarfræðinni. Hann talar um „wholeness“, þ.e að það skipti máli að horfa á allt í heild sinni. Rúdólf með rauða trínið er MAÐURINN! Það er engan vegin möguleiki fyrir mig að greina nákvæmlega hvað liggur á bak við fræði Rudolfs Steiner í þessum stutta pistli mínum en ég get sagt ykkur að fræðin eru falleg, í sátt við umhverfið, jörðina, tunglið, náttúruöflin og þau eru ofboðslega djúp og jafnvel á andlegu nótunum. Ef ykkur finnst það stupit að hreingerningarvörur séu framleiddar á andlegum nótum, þá hafiði kannski ekki ennþá fattað að við og heimurinn erum spirutual beings…kannski fattiði það seinna…þegar þið eldist :)

Ég er sjálf ekki mjög fróð um stöðu himintunglanna, stjörnurnar…en ég átta mig á að allt þetta skiptir máli. Kannski er það trú? Kannski er það bara eh vellíðan fyrir mig að vita af þessum öflum…ég veit það ekki. En eitt veit ég í hjarta mínu, að allt í heiminum skiptir máli. Líka tunglið :) Já, og eitt annað…allar Demeter vottaðar vörur eru líka ræktaðar með tilliti til tunglsins, stjarnanna og ég veit ekki hvað og hvað :-) Ofboðslega fallegt að ég fæ næstum tár í augun….Ekki framleiðir Mcdonalds sinn hamborgara í tilliti við einn né neinn, ekki einu sinni hafa þeir þína heilsu né líðan fyrir brjósti þegar globewithleafþeir framleiða sínar vörur! Líka þess vegna finnst mér dásamlegt að það sé ennþá fólk sem hefur áhuga á að gera hið andstæða, framleiða heilnæmar og dásamlegar vörur fyrir fólkið, jörðina og allt í heiminum. Það er fallegt og í raun sjaldgæft á árinu 2010.

Ok, ég er komin langt út fyrir umræðuefnið…en það var að mig minnir að tala um vorhreingerningu á náttúrulegan hátt :) Ég byrjaði á því að velja mér nokkrar góðar „basic“ vörur. Gluggasprey, baðsprey, golfsápu (sem er líka handsápa og uppþvottalögur) og svo þvottaefni. Ég valdi mér með náttúrulegum sítrus ilm og svo lavender ilm, því ég elska lavender. Lavender er svo ótrúlega mögnuð jurt. Kosturinn við Sonett er klárlega hversu ótrúlega hreinar vörurnar eru og líka: þær virka! Ég fæ alveg jafn mikla vellíðunar – hreingerningar tilfinningu, jafnvel betri tilfinningu…því ég er ekki að skola eiturefnum í klósettið eða menga andrúmsloftið fyrir fjölskyldumeðlimum. Ég þarf að nota mun minna í einu því virknin er mjög góð en ella.

Ég ætla að halda áfram að taka mín fyrstu skref í umhverfisvænna lifi…þetta var eitt þeirra :-)

REUSE, REDUCE, RYCYCLE :) Að vera umhverfisvænn er auðvelt…ég hvet þig til að taka fyrstu skrefin strax í dag! :-)

HAPPY EARTH DAY (sem reyndar var um daginn, en eru ekki allir dagar Earth day!?)

Kv. Sirrý :-)



Hver er ég?

Ég hef óbilandi áhuga á heilsu, mataræði, næringu, langlífi, lífrænum lífsstíl, umhverfinu, náttúrunni, sjúkdómsvæðingu, tísku, hönnun, tónlist og svo ótal mörgu fleira. Hér skrifa ég umbúðalaust - og vona að þú njótir. Varúð - ég nota sterk lýsingarorð, dass af ýkjum og reyni að flétta inní pistlana smá húmor. Svo ekki taka mig of bókstaflega - Við erum öll hérna til að hafa gaman af :)

Spurðu mig og ég svara

 

júlí 2010
Þ Mi Fi L S
« júní    
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
262728293031