Að hlusta á góða tónlist er eins og einn góður 8000 króna tími hjá sálfræðingi… að minnsta kosti að mínu mati
Fyrir mér er það eins og pínulítill ferð til draumalandsins og fyrst þá byrjag ég að hugsa og melta hugmyndir mínar þegar ég set uppáhalds tónlista mína á. Ég vinn aldrei betur en með tónlist í eyrunum. Þessi tónlistar klausa er mjög ótengd efninu sem ég ætla að taka fyrir í þessum pistli. Mig langaði bara að benda ykkur á þessa skemmtilegu tengingu á heiti þessa pistils og innihaldi hans. Hvaða ótrúlega flotta hljómsveit gaf út disk með þessu nafni!!?
(klárlega auðveldasta pop quiz-ið sem sögur fara af!)
Þar sem okkur finnst svo gott að láta mata okkur, langaði mig að koma með nokkrar hugmyndir af góðri byrjun á góðum degi…skortir okkur ekki öll hugmyndir og smá spark í rassinn svona stöku sinnum


Ágætis byrjun hefst til dæmis svona…Veljið að sjálfsögðu eitt atriði..ekki allt í einu!
- Stórt glas af volgu vatni …klikkar ekki!!!
- Glas af volgu vatni með hálfri kreistri ferskri sítrónu = Þetta er svo fjandi sniðugt ráð! Þetta hefur góð áhrif á sýrustig líkamanns, meltingu og ég veit ekki hvað og hvað!
- Glas af volgu vatni með 2 msk af lífrænu, dásamlegu, gruggugu móður eplaediki og 1 tsk af lífrænu næringarríku hunangi = svo fjandi sniðugt að það er nauðsýnlegt fyrir alla að lesa pistilinn minn um Eplaedik sem er hverju orðu sannara um þennan magnaða drykk beint frá náttúrunnar hendi.
- 1 stk. lítið glas af íííííísköldum lífrænum Rauðrófusafa. Magnað fyrirbæri fyrir meltinguna og hann er ótrúlega djúphreinsandi. Hver vill ekki fá smá fútt í meltinguna sína svona snemma morguns? Hann er mjög Járnríkur og ótrúlega næringarríkur. Svo er hægt að nota hann sem vara og kinnalit! Eftir þetta glas muntu líta svo frísklega út að það mætti halda að þú hafir verið að gera einhvað dónalegt þarna um morguninn..hmmm..
- Öndunaræfingar í 5 mín. Það er staðreynd að flest okkar öndum vitlaust og of lítið! Já, ég sagði það, OF LÍTIÐ. Það þýðir að líkaminn er ekki að fá nægju sína af surefni í blóðið á hverjum einasta degi. Nú má hvaða læknir sem er búa til sér blogg um mig til að segja hversu mikil vitleysa þetta er – en þetta er bara svona! Við öndum of stutt, of hratt og of lítið….= Aukin stress myndun í líkamanum…of mikil streita og rugl í kroppinn! Enginn vill það… prufið að fara í yoga og lærið undirstöðu atriði í góðum öndunaræfingum. Klárlega fjárfesting uppá lengra líf!
- 1 matskeið af lífrænni Hveitikím olíu – góð byrjun á góðum degi er klárlega svona! Hveitikím olían er svo öflug og svo ótrúlega rík af E-vítamíni – sem spornar við ótímabærri öldrun! Sem þýðir á mannamáli = besta og virkasta hrukkukrem og yngingar efni á jörðunni!
Mig langar að fá að afrita grein sem ég fann í heilsuhringnum.is – skrifum árið 1984, á því herrans ári var ég einmitt 1 árs. Þessi grein er fróðleg og auðveld lesningar og þar má finna skemmtilegar staðreyndir um Zink, E-vítamín og hina magnaðu hveitikím olíu.
Greinin er í heild sinni birt á slóðinni http://www.heilsuhringurinn.is/index.php?option=com_content&view=article&id=490:heilsuhornie&catid=16:faeeubotarefni&Itemid=12
SÚREFNIÐ OG HJARTAÐ
Það er margt, sem getur orsakað hjartaveilur: léleg fæða, ofgnægð sykurs, of lítil hreyfing, offita, reykingar, kaffi o.íl. Allt getur þetta haft þau áhrif að hjartavöðvinn fái oflítið súrefni. En súrefni er þessum þolmikla iðjusama vöðva nauðsynlegt, stöðug tilfærsla súrefnis. Lítil skerðing súrefnis getur haft alvarlegar afleiðingar. – Austurríski próf. og vísindamaðurinn W. Halden, við Alþjóða heilbrigðisstofnunina skýrði frá því á þingi næringarfræðilegra rannsókna, að t.d. blóðleysi geti orsakað skaðaverkanir á hjarta og æðum, þar eð rauðu blóðkornin flytji ekki nægð súrefnis. Kaffi og tóbak geta einnig valdið súrefnisskorti með truflunum á blóðsykursmagni og með aukningu á kólesteról og fituinnihaldi blóðsins. -Alkóhól hefur líka áhrif. Fita í æðum hindrar nægð súrefnisríks blóðs til hjartans. Þannig er súrefnisskortur bein orsök hjartasjúkdóma….! - málsgrein endar.
Ég tek inn Hveitikím olíuna á hverjum degi. Að mínu mati er hún frekar bragðlaus, en ég hef líka lært það að bragðlaukarnir okkar eru ótrúlega misjafnir. Besta ráðið sem ég get veitt er að demba þessu bara í sig og drekka svo góðan safa á eftir til að minnka bragðið. Hveitikíms olían er svo ótrúlega öflug að ég myndi ekki láta bragðið koma í veg fyrir inntöku hennar. Hún er allt frá því að vera öflugur andoxari fyrir allann kroppinn, styrkjandi fyrir hjartað, súrefnisboost fyrir frumurnar okkar, besta og náttúrulegasta hrukku“krem“ (til inntöku!) sem fyrir finnst…og án allra aukaverkana og parabena.
Það er nóg að taka inn 1 – 2 msk á dag
… já by the way, með inntöku hveitikím olíu ertu að auka upptöku súrefnis í líkamanum til muna
Auðvelt og dásamlegt… er það ekki? Hveitikím olía fæst meðal annars í Yggdrasil, Nettó og Fjarðarkaupum.
- Aftur á forsíðu



Lovely!
Og ég er totally sammála þér með tónlistina!
Antony and the Johnsons – Spiraling er meðalið mitt fyrir sálina:)
Endalaus ást til þín perla:***
ps. Stutt í 27. mars jííísk!
Sigurrós
Rauðrófusafi er málið. Mega sega gott!
Frábært blogg sem ég er nýbúin að uppgötva!
Ég hef í nokkrar vikur drukkið – flesta morgna – glas af volgu vatni með kreistri sítrónu.
Mig langar að prófa að taka hveitikímsolíuna og er að velta fyrir mér hvort það hafi einhver áhrif á virkni að taka hana og drekka svo sítrónuvatnið strax á eftir?
Hæ Guðrún!
Það ætti ekki að hafa nein áhrif eftir því sem ég best veit… kannski best að hinkra örstutt svona á milli, bara til að vera viss. En ég held að það hafi engin neikvæð áhrif
Hæhæ!
Hvers vegna volgt vatn?
og geturðu mælt með einhverju sérstaklega fyrir viðkvæma meltingu (meltingarsjúkdómur!), þ.e. hvað er gott að borða/drekka/taka inn og hvað beri að forðast?
b.kv. Kristín